Fram tekur á móti Þór í dag kl 17:00 á "heimavelli" sínum Laugardalsvelli. Mjölnismenn hita upp fyrir leikinn á Ölver og hefst upphitunin kl 15:00, Mjölnismenn eru í þessum töluðu orðum á leiðinni suður í rútu svo það er nokkuð ljóst að það verður hrikaleg stemming bæði á Ölver og Laugardalsvelli í dag. Hvetjum alla til að mæta!

Fantasy deild Mjölnismanna hefur farið vel af stað og fín skráning er í hana. Þeir sem enn eru ekki skráðir geta skráð sig í hana með þessu kóða: aqbDRDu4xr. Það er ekki of seint að skrá sig, stigin þín koma með þér inn í deildina.

Eftir erfiða byrjun í 1. deild karla hafa KA menn ákveðið að styrkja sig með því að kalla Gunnar "Giggs" Magnússon til baka úr láni frá Dalvík/Reyni

Þórsarar tóku á móti Völsurum í Þorpinu í kvöld, leikurinn endaði með 5-3 sigri Vals.
920 manns voru mættir á Þórsvöll í kvöld í blíðskaparveðri. Valsarar voru taplausir í Pepsi-deildinni fyrir leik með 3 sigra og 2 jafntefli, en Þórsarar með 2 sigra og 3 töp.

Á morgun sunnudag tekur Þór á móti Val í 6. Umferð Pepsi deildar karla. Leikurinn fer að sjálfsögðu fram á Þórsvelli og hefjast leikar kl 18.00.
Mikill stígandi hefur verið í leik Þórsara í undanförnum leikjum en liðið hefur unnið síðustu tvo leiki í Pepsi deildinni og gerðu eftirminnilegt 3-3 jafntefli við Stjörnuna í 32. liða úrslitum Borgunarbikarsins sem endaði síðan með sigri Stjörnunnar í vítaspyrnukeppni.






