
Þórsarar urðu fyrir tvöföldu áfalli á dögunum þegar að Pétur Heiðar Kristjánsson og Kristján Steinn Magnússon ákvöðu að halda til Noregs og spila með íslendinga liðinu Stryn. Drengirnir munu halda út til Noregs á þriðjudaginn og spila með liðinu út tímabilið í Noregi. Tímabilið þar er frá mars til loka október mánaðar.
Þeir voru báðir í hópnum gegn FH fyrr í dag en Pétur kom inn á þegar að rúmar 20 mínútur voru eftir af leiknum. Þetta var því kveðjuleikur hjá þeim.
Kristján hefur aðeins komið við sögu í tveimur leikjum hjá Þór á tímabilinu en hann var á láni hjá Völsung fyrri hluta mótsins. Pétur hefur hinsvegar komið við sögu í fimm sinnum þar af tvisvar í valitor bikarnum.
Pétur þekkir vel til hjá Stryn en hann var þar seinasta vetur. Pétur og Kristján ættu að kannast við markmann Stryn en það er Þórsarinn Gunnar Líndal. Í fyrra bjuggu einnig Kristján Sigurólason leikmaður Þórs (er á láni hjá Dalvík / Reyni) og Sveinn Leó Bogason Mjölnismaður í bænum. Því má segja að Stryn sé eins konar Þórsara bær.
Stryn spilar í norsku þriðju deildinni sem er fjórða efsta deildin þar í landi. Liðið er í botnbaráttu í sínum riðli og munu Kristján og Pétur eflaust nýtast liðinu vel í þeirri baráttu.

Kristján Steinn Magnússon

Pétur Heiðar Kristjánsson
Tweet
Hvađ er ţetta „Átján“ ?
Í ţennan reit skrifaru einfaldlega töluna átján, ţetta er til ađ koma í veg fyrir „spam“.
BB Code stuđningur er á -
Feitletrađ:
= [b]texti[/b]
Skáletrun:
= [i]texti[/i]
Undirlína:
= [u]texti[/u]
Linkur:
= [url=linkur]texti[/url]


