U-21árs landsliđiđ lagđi Belga.

Fyrr í dag tók Íslenska undir 21 árs landsliðið á móti Belgíu í undankeppni Evrópumótsins 2013. Þrír Þórsarar eru í þessum landsliðshópi en það eru þeir Gísli Páll Helgason, Atli Sigurjónsson og Jóhann Helgi Hannesson. Jóhann Helgi komst því miður ekki í 18 manna hópinn fyrir leikinn en alls voru 23 valdir í æfingarhópinn. Gísli og Atli byrjuðu báðir á varamannabekknum.

Sterka leikmenn vantaði í lið Belga í kvöld t.d Eden Hazard, Romelu Lukaku og Dedrick Boyata. Eins vantaði sterka menn í Íslenska liðið eins og Jóhann Berg og Kolbein Sigþórsson, þeir báðir verða líklega i byrjunarliðinu gegn Noregi með A landsliðinu á morgun.

Það er gaman að segja frá því að Ísland sigruðu Belgana 2-1 á Vodafone vellinum. Það var Björn Bergmann Sigurðsson sem kom Íslandi yfir í fyrri hálfleik áður en Christian Benteke leikmaður Genk jafnaði metinn rétt fyrir lok fyrri hálfleiks.

Það tók íslenska liðið langan tíma að skora annað markið en kom það loks á 86 mínútu. Okkar maður Atli Sigurjónsson hafði komið inn á 10 mínútum áður en það var Björn Bergmann sem skoraði markið eftir góðan undirbúning frá Kristni Steindórssyni. 2-1 því lokatölur leiksins. Þess má geta að Atli var eini varamaður Íslands sem kom við sögu í leiknum.

Ásamt Íslendingum og Belgum eru þrjú önnur lið í riðlinum. Noregur, Aserbaidjan og England. Þau tvö síðar nefndu mættust fyrr í kvöld og sigruðu Englendingar örugglega 6-0. Næsti leikur Íslands er gegn Noregi á þriðjudaginn næstkomandi á Kópavogsvelli. 


Jóhann Helgi var ekki í hóp í dag...


 

 
    Ummćli
    Skrifa Ummćli
Nafn:
 

Átján:


Ummćli:



Hvađ er ţetta „Átján“ ?
Í ţennan reit skrifaru einfaldlega töluna átján, ţetta er til ađ koma í veg fyrir „spam“.

BB Code stuđningur er á -

  Feitletrađ:
  = [b]texti[/b]

  Skáletrun:
  = [i]texti[/i]

  Undirlína:
  = [u]texti[/u]

  Linkur:
  = [url=linkur]texti[/url]