
Fyrr í dag mætti Íslenska u-21 árs landsliðið Noregi á Kópavogsvelli. Leiknum lauk með 2-0 sigri Norðmanna, mörkin skoruðu Joshua King og Thomas Rogne. Íslenska liðið var fyrir leikinn með þrjú stig eftir að hafa unnið Belga á fimmtudaginn. Noregur hafði hinsvegar ekki enn spilað en þeir sátu hjá í fyrstu umferðinni.
Margir voru ósáttir við að Björn Bergmann Sigurðsson sem skoraði bæði mörkin gegn Belgum hafði verið færður upp í A-landsliðið fyrir leikinn gegn Kýpur. Það varð þó til þess að okkar maður Gísli Páll Helgason fékk að byrja leikinn í hægri bakverðinum. Jóhann Laxdal hafði spilað þar gegn Belgum en hann var í staðinn færður upp á hægri kantinn og Aron Jóhannsson settur efst á toppinn í stað Björns.
Hinir tveir Þórsararnir Atli Sigurjónsson og Jóhann Helgi Hannesson sátu á varamannabekknum. Atli kom inn á á 68 mínútu og var nálægt því að skora tvisvar í lok leiks en Jóhann sat allan tímann á varamannabekknum.
Gísli Páll átti því miður ekki sinn besta leik í kvöld en hann átti sök á fyrsta marki Norðmanna. Fram af því í leiknum höfðu Íslendingar verið líklegri til að skora. Honum var skipt útaf fyrir Dofra Snorrason leikmann KR á 58 mínútu.
Nóg er eftir að leikjum fyrir Þórsarana okkar til að sanna sig en liðið á eftir að leika tvisvar við Englendinga og Aserbaidjan og einu sinni í viðbót við Noreg og Belga. Næsti leikur liðsins er gegn Englendingum á Laugardalsvelli þann 6 Október.
Atli var óheppinn að skora ekki gegn Noregi í dag.
Tweet
Hvađ er ţetta „Átján“ ?
Í ţennan reit skrifaru einfaldlega töluna átján, ţetta er til ađ koma í veg fyrir „spam“.
BB Code stuđningur er á -
Feitletrađ:
= [b]texti[/b]
Skáletrun:
= [i]texti[/i]
Undirlína:
= [u]texti[/u]
Linkur:
= [url=linkur]texti[/url]


