
Á morgun er biðin loks á enda, fyrsta deildin hefst. Þórsarar hefja leik á heimavelli gegn sterku liði Leiknis. Liðin þekkja vel til hvors annars en þau börðust fram á seinasta dag um sæti í pepsi deildinni árið 2010. Eins og allir vita unnu Þórsarar þá baráttu og eiga því Leiknis menn harma að hefna.
Heil umferð fer fram á laugardaginn og eru því sex leikir á dagskrá. SportTV mun sýna leik Hauka og Tindastóls beint á heimasíðu sinni. Fyrir þá sem ekki komast á þórsleikinn á laugardag stefna thorsport.is á að sýna leikinn ásamt því að vel valdir drengir lýsa leiknum beint.

Eftir mjög gott tímabil árið 2010 var árið í fyrra hrein skelfing hjá Leiknismönnum. Liðið var hársbreidd frá falli úr 1 deildinni en það var einungis markahlutfall liðsins sem bjargaði liðinu frá því að liðið sé ekki í 2 deild. Á síðasta tímabili var þjálfari liðsins Sigursteinn Gíslason, en hann þurfti snemma á tímabilinu að taka sér frí vegna alvarlegra veikinda. Eins og allir vita urðu veikindin til þess að hann yfirgaf þennan heim og vottum við aðstandendum hans samúðarkveðjur.
Við tók af honum serbinn Zoran Miljkovic en hann kom með sérstakar hugmyndir inn í liðið sem fóru misvel í Leiknismenn. Hans krafta var ekki óskað lengur eftir síðasta tímabil og við liðinu tók hinn afar sigursæli þjálfari Willum Þór Þórsson.
Kjarninn í liðinu er byggður upp á ungum uppöldum sterkum leikmönnum. Fannar Arnarsson, markmaðurinn Eyjólfur Tómasson, Hilmar Árni Halldórsson og sóknarmaðurinn Ólafur Hrannar Kristjánsson eru mjög góðir leikmenn og verða þeir að eiga gott sumar til að liðið eigi að gera atlögu af pepsi deildar sæti. Reikna má með því að Willum Þór sætti sig ekki við neitt annað en sæti í pepsi deildinni næsta sumar, enda mjög metnaðarfullur þjálfari.
Hilmar Árni
Liðið gerði litlar breytingar á leikmannahópnum fyrir tímabilið. Liðinu tókst þó að fá þrjá reynslumikla leikmenn úr úrvalsdeildinni, þá Gunnar Einarsson, Andra Stein Birgisson og Stefán Jóhann Eggertsson. Á móti missti liðið ekkert sérstaka leikmenn. Vissulega fór Pape Mamadou Faye í Grindavík en alls ekki allir eru sammála um það sé mikill missir. Því má reikna með að Leiknis menn séu með talsvert sterkari leikmannahóp en í fyrra og reynslumeiri þjálfara sem þekkir það vel að sigra.
Komnir:
Andri Steinn Birgisson frá Keflavík
Damir Muminovic frá HK
Gunnar Einarsson frá Víkingi R.
Jóhann Andri Kristjánsson frá Fylki
Pétur Már Harðarson frá Gróttu
Stefán Jóhann Eggertsson frá Val
Farnir:
Brynjar Óli Guðmundsson í KB
Eggert Rafn Einarsson í KV
Pape Mamadou Faye í Grindavík
Steinarr Guðmundsson í KB
Þórir Guðjónsson í Val (Var á láni)
Ekki er víst hvort Andri Steinn Birgisson geti leikið gegn Þórsurum en hann hefur verið meiddur upp á síðkastið. Jákvætt fyrir Leiknismenn er að Fannar Þór Arnarsson sem er líklega þeirra sterkasti leikmaður verður mættur til landsins fyrir leikinn en hann hefur verið í Bandaríkjunum í allan vetur vegna náms. Aðrar jákvæðar fréttir fyrir þá eru að Aron Fuego hefur náð sér af langvarandi meiðslum sem hann hefur verið að glíma við.

Fannar Þór
Fyrirliði:
Vigfús Arnar Jósepsson
Þjálfari:

Willum Þór Þórsson
Lykilmenn :
Andri Steinn Birgisson, Fannar Þór Arnarsson og Eyjólfur Tómasson
Hjá Þórsurum er það að frétta að Andri Hjörvar Albertsson missir af fyrstu tveim leikjum liðsins vegna leikbanns. En hann tók með sér leikbann frá Fjarðabyggð þar sem hann lék á seinasta tímabili. Bróðir hans Atli ætti að verða klár fyrir leikinn en hann hefur verið meiddur að undanförnu. Ekki hefur verið samið við sænska sóknarmanninn Robin Strömberg, hann má því ekki spila þennan leik. Allir aðrir ættu að vera klárir í slaginn.
Líklegt byrjunarlið Þórs:
Srdjan Rajkovic
Baldvin Ólafs - Atli Jens - Janez Vrenko - Ingi Freyr
Siggi Marinó - Joe Funicello - Orri Hjaltalín
Sveinn Elías - Jóhann Helgi - Kristinn Þór
Við Mjölnismenn ætlum að sjálfsögðu að hita upp fyrir leikinn og verður það gert í okkar nýja félagsheimili í Hamri. Upphitun mun hefjast kl 12:00 að hádegi og leikurinn sjálfur verður svo kl 14:00. Við hvetjum að sjálfsögðu alla til að mæta og styðja Þórsara í þessum afar mikilvæga leik. Að lokum minnum við á pókermót mjölnismanna sem verður haldið í kvöld klukkan 19:30 á Sportvitanum. Skráning á það er í fullum gangi hér: http://www.facebook.com/events/352453288148653/
Áfram Þór!
Tweet
Hvađ er ţetta „Átján“ ?
Í ţennan reit skrifaru einfaldlega töluna átján, ţetta er til ađ koma í veg fyrir „spam“.
BB Code stuđningur er á -
Feitletrađ:
= [b]texti[/b]
Skáletrun:
= [i]texti[/i]
Undirlína:
= [u]texti[/u]
Linkur:
= [url=linkur]texti[/url]


