Kristján Steinn Magnússon
1. Hefur náð touch-down? Spilaði amerískan fótbolta í fyrsta sinn nú á dögunum og náði einu TD. Hitt liðið var með boltann og tók kastkerfi, ég plantaði mér á hárréttan stað, átti glæsilegt interception og joggaði með pigskinnið heim.

2. Besti samherjinn, fyrr og síðar? Allir 90 og 91 Þórsararnir sem að hafa spilað með mér síðan í 5. flokki og gera enn.

3. Ertu ástfanginn? Nei. Ástfangið fólk er hamingjusamt og hamingjusamt fólk er leiðinlegt.


4. Hvernig bíl áttu? Ég á ekki bíl en hef afnot af forláta Volkswagen Golf.


5. Afhverju hataru Krilla? Af því að hann er longlegs og með rauða skeggrót.


6. Hver er stærstur í klefanum? Það mundi vera Slangan sjálf, öðru nafni rúsínuhöfuð.

7. Hver er mesti huzzlerinn? Ég hef séð einn uppi á ofninum á Kaffi Ak, hann var hrikalegur.


8. Mjölnismenn eru? tólfti maðurinn

9. Í hvernig skóm spilaru í? Vapor

10. Hápunktur á þínum ferli? Íslandsmeistaratitillinn í 3. flokki, Visa-bikarinn í 2. flokki og fyrsta meistaraflokksmarkið í fyrra.


11. Markmið sumarsins? Upp í úrvalsdeild

12. Trúiru á Jésu Krist? Ég trúi því að Jesús hafi verið uppi á sínum tíma eins og hver annar maður. Ég trúi hins vegar að sjálfsögðu ekki að hann hafi haft nokkra yfirnáttúrulega tengingu og ég trúi engan veginn að það sé til Guð. Biblían er uppfull af þversögnum og vitleysu. Ég gæti haldið langa tölu hér en ætla að láta hér við sitja.


13. Hvað borðaru í morgunmat? Misjafnt. Kornflex og mjólk, brauð með túnfiskssalati, þykkmjólk með perum og eplum. Þetta er svona algengast.


14. Saknaru BelMundo? Hvern einasta dag

15. Ef þú mættr velja einn til að koma í Þór, hver væri það? ice Entex

16. Besti og versti dómarinn? Doddi Hjaltalín er með hlutina á hreinu. Hinir eru misslakir.


17. Afhverju hataru Jóa Valgeirs? Það geri ég ekki. Ég hinsvegar elska hans þekktasta move. Þú þarna, númer átta, HÆTTU ÞESSU!

19. Spilaru Counter-Strike? Gerði það á mínum yngri árum, þarf að fara að grípa í músina og ASDW við tækifæri.

18. Hvað myndiru gera ef þú værir kona í einn dag? Ganga í kvenfélag og klæða mig í dragt.

20. Hvað ætlaru að eiga mörg börn? Held ég láti það koma í ljós bara.

21. Notaru tóbak? Og afhverju? Nei, það er til lítils

22. Með hvaða liði helduru með í ensku? Manchester United

23. Hvað fékkstu mikinn pening í fermingagjöf? 212.000 kr. Þær fóru í vitleysu enda var ég alltof ungur til að fara með svona mikið af peningum. Alveg eins og ég var alltof ungur til að taka ákvörðun um mínar trúarskoðanir. Mig langar pínu að fara á rant um hræsni innan þjóðkirkjunnar en ætla að sleppa því.

24. Hver er feimnastur í Þór? Allavega ekki Viggó

25. Hver er mesta egóið? Öggi þegar hann slysast til að gera eitthvað af viti á æfingu

26. Hvernig myndiru fagna ef þú myndir skora á móti KA á 90 mín.? Hlaupa að Orra Gústafs og faðma hann

27. Með hvaða liði myndiru aldrei spila með? KA

28. Myndiru giftast fyrir peninga? Nei

29. Hvar væriru í dag ef þú værir ekki atvinnumaður í fótbolta? Ég lít nú ekki á mig sem atvinnumann, ég væri líklegast á mjög svipuðum slóðum, bara með eitthvað annað áhugamál.

30. Hvað þurfi þið að gera til þess að fara upp? Trúa því að við getum það (Með hetjutónlist í bakgrunni)


31. Hver er mesti homminn í liðinu? Við erum allir furðulega gagnkynhneigðir.

32. Bojana eða Mateja? Báðar ótrúlega flinkar í fótbolta miðað við kyn.

33. Ertu með einhverja rútínu fyrir leik? Ekkert sérstakt persónulega, reyni bara að vakna snemma og borða vel og svona. Svo er náttúrulega klefadiskurinn ómissandi.


34. hvað er metið þitt að halda á lofti? 250 í googleplexta veldi

35. Varstu í a-liði á shell mótinu? Fór aldrei á shell-mótið. Þegar ég var í 6. flokki spilaði ég með Einherja á Vopnafirði.

36. Hvern myndiru vilja sjá sem lukkudýr í sumar? Nazaret hlaupandi hringinn með Þórsfána

37. Hvaða lið vinnur HM? Spánn kannski

38. Hver er skoðun þín á rannsóknarskýrsluni? Allt lygi, Viva Davíð Oddsson 4ever!
 

 
    Ummæli
  viggó 
2.07.2010 - 15:00 

Stærstur og ófeimnstur?? Þvílik lygi longlegs! Ég er ekki neitt neitt og segi aldrei orð i klefanum.


  Sveinn Leó  
6.07.2010 - 03:10 

"Ég trúi því að Jesús hafi verið uppi á sínum tíma eins og hver annar maður. Ég trúi hins vegar að sjálfsögðu ekki að hann hafi haft nokkra yfirnáttúrulega tengingu og ég trúi engan veginn að það sé til Guð. Biblían er uppfull af þversögnum og vitleysu. É


  Sveinn Leó  
6.07.2010 - 03:11 

framhald:Ég gæti haldið langa tölu hér en ætla að láta hér við sitja. Krilli þeegiðu



    Skrifa Ummæli
Nafn:
 

Átján:


Ummæli:



Hvað er þetta „Átján“ ?
Í þennan reit skrifaru einfaldlega töluna átján, þetta er til að koma í veg fyrir „spam“.

BB Code stuðningur er á -

  Feitletrað:
  = [b]texti[/b]

  Skáletrun:
  = [i]texti[/i]

  Undirlína:
  = [u]texti[/u]

  Linkur:
  = [url=linkur]texti[/url]