Þórsari vikunnar að þessu sinni er Orri Freyr Hjaltalín. Orri sem er fyrirliði Grindavíkur er uppalinn Þórsari. Hann var lykilmaður í Þórsliðinu sem rúllaði upp 1.deildinni árið 2001 og skoraði hann þá 16 mörk í 18 leikjum. Hann spilaði með Þór í úrvalsdeildinni árið eftir en eins og flestir muna féll liðið.
Orri ákvað þrátt fyrir fallið að halda tryggð við liðið og spilaði hann eitt tímabil í viðbót með liðinu.
Eftir að Þórsurum mistókst naumlega að komast beint aftur upp í úrvalsdeild ákvað Orri að láta reyna á atvinnumennskuna.
Meiðsli hafa þó sett strik í reikninginn á hans ferli og kom hann fljótlega heim frá Noregi þar sem hann spilaði með Tromsö.
Þá gekk hann til liðs við Grindavík og hefur spilað með þeim síðan.
Hvenær byrjaðiru að halda með Þór ?
"Ég hef haldið með þór frá því að ég man eftir mér, pabbi var í stjórn þegar ég var smá gutti þannig að það má segja að ég hafi fæðst inní klúbbinn."
Hver er þín fyrsta minning tengd Þór ?
"Mín fyrsta minning er þegar ég fékk að keppa með eldri strákunum, ég var 5 ára og fékk að spila með eldri bróður mínum sem var 7 ára, þá var ekki leyfilegt fyrir mig að æfa með Þór, ég var alltaf úti í fótbolta með þeim og einhvern veginn náði pabbi að troða mér þarna inn. Hann var tilbúinn á hliðarlínunni með cameruna klára til að taka upp leikinn fyrir mig en ég þorði ekkert að elta boltann og var í staðinn að elta fiðrildi út um allann völl."
Hver er eftirminnilegasti þórsleikur sem þú hefur spilað ?
"Stærsti leikurinn sem ég spilaði var sumarið 2001 þegar við unnum KA 2-1 í 17.umferð og tryggðum okkur sæti í úrvalsdeildinni. Akureyrarvöllur var troðfullur og geggjuð stemning."
Hver er uppáhalds Þórsarinn þinn og hvers vegna ?
"Það koma margir upp í hugann en ég verð að segja Jónas Róbertsson, hann þjálfaði mig upp alla flokka og svo var hann hrikalega klókur og góður leikmaður, einnig er ekki hægt að sleppa Atla „Afa“Rúnarssyni og Páli „gorgo“ Gíslasyni, þeir hafa verið ómetanlegir fyrir klúbbinn í gegnum tíðina."
Hver hefur verið besta stundin sem stuðningsmaður Þórs ? og sú versta ?
"Stærsta stundin var þegar við unnum fyrstu deildina 2001, við vorum nánast allir uppaldnir þórsarar og það gerði þetta mjög sérstakt. Versta stundin var þegar við komust ekki upp í úrvalsdeildina 2003 með hrikalega gott lið, unnum 6-0 í lokaleiknum en það dugði ekki til."
Ef þú mættir velja einn leikmenn til að koma í Þór núna, hver væri það ?
"Ég held að þór vanti einhvern reynslumikinn mann sem spilar alltaf vel og því held ég að þeir gætu notað Baldur Sigurðsson í KR, held að hann gæti reynst þeim mjög vel."
Hvernig myndir þú stilla upp liði ef þú gætir valið úr öllum leikmönnum Þórs fyrr og síðar ?
Atli Rúnars
Lárus Orri - Hlynur Birgis - Nói Björns - Aron Einar
Jónas Rób - Halldór Áskells - Palli Gísla
Gummi Ben -Bjarni Sveinbjörns - Jói Þórhalls
Bekkurinn: Árni Stefáns, Birgir Þór Karlsson, Heiðmar Felixson, Júlíus Tryggvason og Ingi Kiwíhaus Heimisson
Hvernig spáiru gengi liðsins í sumar ?
"Það er alltaf erfitt fyrir lið að koma upp, flest þeirra fara aftur niður en ég held að ef þór haldi áfram að vera með sterkan heimavöll þá eigi þeir eftir að eiga gott sumar. Það vill oft loða við liðin sem koma upp að byrja mótið af miklum krafti en þegar líða tekur á sumarið þá dala þau og krækja í fá stig í seinni umferðinni. Þór þarf að vera stöðugir í leik sínum og hirða stig jafnt og þétt. Það verður væntanlega mjög auðvelt fyrir þjálfarann að mótivera liðið fyrir stóru leikina en það verður vandasamt fyrir Palla að gíra þá upp fyrir leikina á móti minni liðunum."
Eitthvað að lokum ?
"Vona bara að sem flestir láti sjá sig á vellinum í sumar og ég óska öllum þórsurum góðs gengis, nema á móti okkur"

Orri (til hægri) í leik gegn Þrótti
